Kynning: Norrænar næringarráðleggingar 2023
![Harpa Concert Hall, Reykjavik_NNR2023](/sites/default/files/styles/content_size_800/public/2023-05/Harpa_justerad.jpg?itok=RGEc4QrB)
Upplýsingar
Ísland
Ný útgáfa Norrænna næringarráðlegginga (NNR2023) er afrakstur fimm ára vinnu um það bil 400 vísindamanna en um er að ræða stærsta verkefni norrænnar samvinnu og jafnframt það þekktasta á alþjóðavettvangi. Norrænar næringarráðleggingar mynda vísindalegan grundvöll næringarviðmiða og ráðlegginga um mataræði í á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Á kynningarviðburðinum í Reykjavík þann 20. júní verða nýjar niðurstöður og ráðleggingar kynntar. Einnig munu fara fram umræður um hvernig innleiða megi nýju ráðleggingarnar.
Þrír viðburðir verða haldnir yfir daginn:
- Blaðamannafundur 8.00–8.45 að íslenskum tíma (10.00–10.45 CEST/Ósló, Stokkkhólmur, Kaupmannahöfn) (11.00–11.45 GMT+3/Helsinki)
- Rannsóknarvefþing 9.00–11.00 að íslenskum tíma (11.00–13.00 CEST/Ósló, Stokkkhólmur, Kaupmannahöfn) (12.00–14.00 GMT+3/Helsinki)
- Kynningarviðburður 14.00–15.30 að íslenskum tíma (16.00–17.30 CEST/Ósló, Stokkkhólmur, Kaupmannahöfn) (17.00–18.30 GMT+3/Helsinki)
Nánari upplýsingar og hlekki á skráningu má nálgast hér fyrir neðan.
Kynningu á Norrænum næringarráðleggingum 2023 verður streymt beint. Verið með okkur á þessum merkisdegi og hlýðið á norræna og erlenda fyrirlesara þegar niðurstöður NNR2023 verða kynntar og mikilvægar umræður um innleiðingu nýju ráðlegginganna fara fram.
Með NNR2023 stíga Norðurlönd af hugrekki fyrsta skrefið í átt til sjálfbærra næringarráðlegginga og vinna með því mikilvægt brautryðjendastarf sem byggt er á gagnsæju ferli og vísindalegum aðferðum.
14.00–14:15 Opnunarávarp
-
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands
-
Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) (upptaka)
14.15–14.35 Erindi: The Nordic Nutrition Recommendations 2023
- Rune Blomhoff, prófessor við Háskólann í Ósló og verkefnisstjóri Norrænna næringarráðlegginga 2023
14.35–15.05 Pallborðsumræður: Sustainable and healthy diets for Agenda 2030
-
Stefanos Fotiou, framkvæmdastjóri Samræmingarskrifstofu matvælakerfa og skrifstofu sjálfbærrar þróunar hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ
-
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
-
Joao Campari, yfirmaður matvælasviðs World Wildlife Foundation (WWF)
15.05–15.25 Umræður: What’s at stake in the implementation of the NNR?
-
Ola Elvestuen, formaður norrænu sjálfbærninefndarinnar, Norðurlandaráði
-
Anne Pøhl Enevoldsen, deildarstjóri hjá Matvælastofnun Danmerkur
-
Dr. Amanda Wood, vísindamaður, Resilience Centre í Stokkhólmi
15.25–15.30 Lokaorð
- Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra Íslands
Fundarstjóri: Katy Harris, Senior Policy Fellow, Stockholm Environment Institute (SEI)
Kynningin fer fram á ensku.
Á rannsóknarvefþinginu verður kafað dýpra í NNR2023. Á vefþinginu munu nokkrir af sérfræðingunum á bak við NNR fara ítarlega yfir rannsóknaraðferðir, uppfærslur og nýjungar í NNR2023.
Skráning á rannsóknarvefþingið
9.00–9.05 Setning
- Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
9.05–9.30 Inngangur og samantekt
- Rune Blomhoff, formaður vinnuhóps um NNR2023, Háskólanum í Ósló og Háskólasjúkrahúsi Óslóar, Noregi
9.30–9.45 A novel cutting-edge methodology for setting recommendations
- Jacob Juel Christensen, Háskólanum í Ósló, Noregi
9.45–10.00 The main scientific foundation
- Rikke Andersen, Tækniháskóla Danmerkur, Danmörku
10.00–10.10 Kaffi
10.10–10.25 The new nutrient recommendations
- Eva Warensjö Lemming, Matvælastofnun Svíþjóðar og Háskólanum í Uppsala, Sweden
10.25–10.40 Food recommendations for improved health
- Inga Þórsdóttir, Háskóla Íslands og Landspítalanum
10.40–10.55 Integration of environmental aspects
- Maijaliisa Erkkola, Háskólanum í Helsinki, Finnlandi
10.55–11.00 Lokaorð
- Rune Blomhoff, formaður vinnuhóps um NNR2023, Háskólanum í Ósló og Háskólasjúkrahúsi Óslóar, Noregi
Fundarstjóri: Åsa Sandberg
Vefþingið fer fram á ensku.
Haldinn verður blaðamannafundur í tengslum við kynninguna þar sem eftirfarandi taka þátt:
- Rune Blomhoff, prófessor við háskólann í Ósló og verkefnisstjóri Norrænna næringarráðlegginga 2023
- Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
- Stefanos Fotiou, framkvæmdastjóri Samræmingarskrifstofu matvælakerfa og skrifstofu sjálfbærrar þróunar hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ
Öllum er velkomið að fylgjast með blaðamannafundinum.
Blaðamannafundurinn fer fram á ensku.
Upplýsingar for the press:
Blaðamenn og ljósmyndarar verða að skrá sig í síðasta lagi 16. júní. Gerð er krafa um gildan fjölmiðlapassa. Tengiliður: Anna Rosenberg, annros@norden.org